1. Ábyrgðaraðili
Nullsoft ehf. rekur Kauply-veflausnina á kauply.is og er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem lýst er hér. Fyrirspurnir: hello@kauply.is.
Athugið tvíþætt hlutverk: gagnvart upplýsingum um ÞIG sem söluaðila er Kauply ábyrgðaraðili; gagnvart upplýsingum um viðskiptavini verslunar þinnar er Kauply vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi í viðauka A við skilmálana.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við og hvers vegna
- Biðlisti og boð: netfang, svo hægt sé að bjóða aðgang. Grundvöllur: samþykki. Hægt er að biðja um eyðingu hvenær sem er.
- Aðgangur söluaðila: netfang, nafn og innskráningarfærslur, til að reka aðganginn og verja hann. Grundvöllur: samningur.
- Rekstrarfærslur (logs): tæknilegar færslur um virkni kerfisins, notaðar til rekstraröryggis og bilanagreiningar. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
- Heimsóknartölfræði verslana er nafnlaus: engar rekjanlegar vafrakökur eru notaðar og engin auðkennanleg heimsóknargögn eru geymd.
3. Vafrakökur
Kauply notar engar rekjanlegar vafrakökur og enga þriðjaaðilamælingu. Einu vafrakökurnar eru nauðsynlegar virknikökur: innskráningarlota og stillingar á borð við valið tungumál.
4. Geymsla og öryggi
Gagnagrunnar eru hýstir á Íslandi; myndir geta farið um efnisdreifikerfi (CDN) sé kveikt á því. Hver verslun hefur aðskilinn gagnagrunn, viðkvæm svið eru dulkóðuð og öryggisafrit tekin reglulega. Aðgangur starfsfólks Kauply að gögnum er takmarkaður við það sem rekstur og stuðningur krefjast og er skráður.
Netföng á biðlista og í boðum eru dulkóðuð í geymslu.
5. Miðlun til þriðju aðila
Upplýsingum er ekki miðlað til þriðju aðila nema til undirvinnsluaðila sem reka þjónustuna (hýsing, tölvupóstsending, efnisdreifing mynda — sjá viðauka A við skilmálana), eða þegar lög krefjast.
6. Geymslutími
Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en þörf krefur: biðlistanetföng þar til boð er nýtt eða eyðingar er óskað; aðgangs- og verslunargögn á meðan samningssamband varir og í 90 daga eftir lokun (sjá 7. gr. skilmálanna); rekstrarfærslur í takmarkaðan tíma vegna rekstraröryggis.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að eigin upplýsingum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi gagna og andmælum. Beiðnir berast á hello@kauply.is og er svarað án ótilhlýðilegrar tafar.
Þú getur borið vinnsluna undir Persónuvernd (personuvernd.is) teljir þú á þér brotið.